Fara í efni

4% fjölgun gistinátta í nóvember

Gisting nóv 07
Gisting nóv 07

Hagstofan hefur birt tölur um fjölda gistinátta á hótelum í nóvember síðastliðnum. Samkvæmt þeim fjölgaði gistinóttum um 2.700 nætur miðað við sama tíma árið áður eða um tæp 4%.

Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 75.100 en voru 72.400 í sama mánuði árið 2006. Gistinóttum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Hlutfallslega varð fjölgun mest á Norðurlandi, þar  nam hún rúmum 9%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 3.100 í 3.400 milli ára.  Á höfuðborgarsvæðinu var aukning gistinátta um 8%, þar fóru gistinætur úr 55.000 í 59.600. Aukning gistinátta á Suðurlandi nam 4% og fóru þær úr 5.000 í 5.300 milli ára. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í nóvember milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækkaði úr 2.700 í 1.200, 58%.  Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða var fækkun gistinátta um 13%, þar fækkaði gistinóttum úr 6.500 í 5.600.

Fjölgun gistinátta á hótelum í nóvember má rekja til Íslendinga, 15%, en gistinóttum útlendinga fækkað lítillega.