Fara í efni

27 aðilar tilnefndir til umhverfisverðlauna

New York Times grein
New York Times grein

Alls bárust 27 tilnefningar til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009 en frestur rann út í lok október. Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 19. nóvember næstkomandi.

Tilgangur verðlaunanna er að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Þau geti með því orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar. Verðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 15. skiptið.

Eftirtaldir aðilar eru tilnefndir að þessu sinni:

Brekkulækur í Miðfirði (Arinbjörn Jóhannsson) 
Bílaleiga Flugleiða ehf.- Hertz 
Bjarteyjarsandur á Hvalfjarðarströnd 
Djúpavogshreppur 
Drangeyjarferðir (Jón Eiríksson bóndi á Fagranesi) 
Eldhestar 
Farfuglaheimilið Ytra Lón á Langanesi 
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs 
Ferðaþjónustan á Kirkjubóli á Ströndum 
Garðyrkjustöðin Engi, Laugarási í Biskupstungum 
Heydalur í Mjóafirði 
Hornbjargsviti (Óvissuferðir ehf.) 
Hrífunes í Skaftártungum 
Hveragerðisbær 
Iceland Conservation Volunteers (Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar) 
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn http://www.fjallaleidsogumenn.is
Norðursigling á Húsavík 
Reykjanesbær (fyrir strandgönguleið) 
Reykjanesfólkvangur 
Selasetur Íslands á Hvammstanga 
Sjálfbært Snæfellsnes (Verkefni 5 sveitarfélaga á Snæfellsnesi) 
Skálanes á Seyðisfirði http://www.skalanes.com
Sveitarfélagið Skagaströnd 
Tjaldsvæðið á Tálknafirði 
Útilífsmiðstöð skáta við Úlfljótsvatn 
Veraldarvinir 
Vörumerkið Fisherman á Vestfjörðum