Fara í efni

13% fjölgun gistinátta á hótelum í október

Gisting okt 06
Gisting okt 06

Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 97.600 en voru 86.600 í sama mánuði árið 2005, að því er fram kemur í tölum Hagstofunnar. Fjölgunin nemur 11 þúsund gistinóttum, eða 13%.

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 17%, úr 11.000 í 9.100. Aukningin var hlutfallslega mest á Norðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 4.100 í 6.400 milli ára, 55% aukning. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 2.500 í 3.000, eða um 20%. Á höfuðborgarsvæðinu var fjölgunin 15% í októbermánuði, en fjöldi gistinátta fór úr 62.000 í 71.300. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 11%, úr 7.100 í 7.900. Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. Tölur fyrir Suðurnes, Vesturland og Vestfirði eru lagðar saman og birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir á Suðurnesjum og Vestfjörðum eru fáir.

Skiptingin milli Íslendinga og útlendinga í október var þannig að gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 18% og útlendinga um 11%. Útlendingar vega þó þyngra þar sem gistinætur þeirra eru rúm 75% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í október.

Gistirými á hótelum í októbermánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.670 í 3.996, 9% aukning og fjöldi rúma úr 7.452 í 8.107, 9% aukning. Hótel sem opin voru í október síðastliðnum voru 75 en 73 í sama mánuði árið 2005.

Gistinóttum á hótelum janúar-október fjölgaði um 11%
Á fyrstu tíu mánuðum ársins fjölgaði gistinóttum um 11% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 935.300 í 1.039.800 milli ára. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Hlutfallslega varð aukningin mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 23%. Á Norðurlandi nam aukningin 16%, Austurlandi 11%, höfuðborgarsvæðinu 10% og á Suðurlandi 5%. Fjölgun gistinátta á þessu tímabili skiptist þannig að gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 14% og útlendinga um 11%. Eins og áður sagði vegur fjölgun gistinátta útlendinga þyngra þar sem gistinætur þeirra eru um 80% af heildarfjölda gistinátta á hótelum þetta tímabil. Sömu sögu er að segja um gistinætur á höfuðborgarsvæðinu, en þær nema um 66% af heildarfjölda gistinátta. Tölur fyrir 2006 eru bráðabirgðatölur.