Samráð um sjálfbæra ferðamálaþróun
Land- og ferðamálafræði Háskóla Íslands í samstarfi við Ferðamálastofu býður til fundar 20. nóvember frá 11:00 til 13:00 í Fjölheimum, Tryggvagötu 13, Selfossi, þar sem rýnt verður í samstarf sveitarfélaga og áfangastaðastofa um áfangastaðaáætlanir..
Kynntar verða niðurstöður rannsóknarverkefnis um samstarf og samvinnu sveitarfélaga og áfangastaðastofa við sjálfbæra uppbyggingu ferðaþjónustu. Að kynningu lokinni fara fram pallborðsumræður um niðurstöðurnar og helstu áskoranir í svæðisbundnum ferðamálum. Rannsóknarverkefnið byggir á viðtölum við áfangastaðastofur og sveitarfélög á Norðurlandi, Austurlandi, Suðurlandi og Reykjanesi, ásamt innihaldsgreiningu á áfangastaðaáætlunum þessara svæða.
Verkefnið var styrkt af Byggðarannsóknarsjóði.
Málstofan er ætluð sveitarfélögum, áfangstaðastofum og öðrum hagaðilum ferðaþjónustunnar og öllum aðilum sem áhuga hafa á stefnumótun, samráði og eftirfylgni þegar kemur að ferðamálum á Íslandi.
Dagskrá:
- 11:00 - Kynning á niðurstöðum verkefnisins
Íris Hrund Halldórsdóttir og Anna Karlsdóttir - 12:00 - Pallborð
Helstu áskoranir í svæðisbundnum ferðamálum og samvinnu um eftirfylgni stefnumótunar - 13:00 - Viðburði lýkur
Léttar veitingar í boði
Vinsamlega skráið þátttöku fyrir 18. nóvember
Nánari upplýsingar: irishh@hi.is og annak@hi.is
