Ísland í essinu sínu
Markaðsstofa Norðurlands og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bjóða fyrirtækjum og öðrum hagaðilum á opinn kynningarfund á Teams miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12:00.
Verkefnið nær yfir svæðið frá Hrútafirði austur í Fljót og miðar að því að draga fram sérstöðu þess og leggja grunn að sameiginlegri markaðssókn í ferðaþjónustu.
Á fundinum verður farið yfir hvernig áformað er að fyrirtæki geti nýtt verkefnið og kynningarefni þess í eigin markaðsstarfi. Einnig verður fjallað um tímaramma verkefnisins og um hugmyndir hvernig megi tengja það viðburðum á nýju ári.
Fundarhlekkur verður sendur á skráða þátttakendur, skráning fer fram hér: https://www.northiceland.is/.../island-i-essinu-sinu...
Við hvetjum öll áhugasöm til að taka þátt og ræða möguleikana sem felast í verkefninu.
Nánar um verkefnið og áherslur þess má lesa hér:
https://www.northiceland.is/is/mn/verkefni/ess