Fjarrýnifundur um markaðsmál ferðaþjónustunnar
Íslandsstofa býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu til fjarrýnifundar um markaðsstarf ferðaþjónustunnar og verkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar mánudaginn 28. september kl. 13:00–14:00.
Fundurinn er haldinn í framhaldi af rýnifundinum í Reykjavík fyrr í mánuðinum og er einkum ætlaður fyrirtækjum sem ekki höfðu tök á að mæta þangað eða eru staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Farið verður yfir sambærilegt efni, ásamt stöðunni eins og hún er í dag. Fundurinn fer fram á Teams svo fyrirtæki um allt land hafi jafnt tækifæri til að kynna sér verkefnin og áherslur komandi árs.
Á dagskrá er meðal annars:
– Staða og horfur á helstu mörkuðum og markaðsverkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar
– Hvernig fyrirtæki geta nýtt markaðsstarfið og markaðsgögnin í eigin sölu- og markaðsstarfi
– Viðskiptatengsl, ferðasýningar og vinnustofur og drög að B2B verkáætlun næsta árs
Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta, og Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður Útflutnings- og fjárfestingarsviðs, fara yfir efnið.
Fundurinn er öllum fyrirtækjum í ferðaþjónustu opinn og skráning fer fram hér: