Fara í efni

Ferðaþjónusta til framtíðar: Ný herferð og þátttaka fyrirtækja

Íslandsstofa boðar ferðaþjónustufyrirtæki til kynningarfundar miðvikudaginn 14. október kl. 13 til 15, í Grósku á skrifstofu Íslandsstofu og á Teams.

Við kynnum herferð sem fer í loftið síðar í október og förum yfir hvernig fyrirtæki geta undirbúið sig og tengt eigið markaðsstarf við hana. Þar á meðal eru markhópalistar fyrir eigin birtingar, leikbók fyrir sölumiðuð átök og nýtt verkefnasvæði fyrir þátttakendur.

Góður tími gefst fyrir spurningar.

Efni fundarins er trúnaðarmál þar til herferðin hefur verið kynnt opinberlega. Þátttakendur samþykkja trúnaðaryfirlýsingu við skráningu. Hver og einn þátttakandi skráir sig sérstaklega.

Skráning