Fundargerðir ferðamálaráðs
Ferðamálaráð Íslands var sett á laggirnar með lögum árið 1964. Fyrsti fundur ráðsins var haldinn 7. júlí það ár. Árið 1976 samþykkti Alþingi ný lög um ferðamál. Með þeim var Ferðamálaráði falið að vinna að ákveðnum verkefnum og í reynd umsjón með ferðaþjónustu á Íslandi undir yfirstjórn samgönguráðuneytis.
Nýtt ferðamálaráð 2006
Verulegar breytingar urðu með nýjum lögum í ársbyrjun 2006. Fram að því var skipað ferðamálaráð jafnframt stjórn stofnunarinnar en með nýjum lögum var skilið þar á milli. Nafni stofnunarinnar var breytt í Ferðamálastofa, hún færð beint undir samgönguráðherra og henni fengin aukin stjórnsýsluleg verkefni.
Ferðamálaráði voru jafnframt fengin ný verkefni. Samkvæmt lögunum skipaði sá ráðherra sem fer með yfirstjórn ferðamála ferðamálaráð og í því skyldu eiga sæti tíu fulltrúar. Formaður og varaformaður skipaðir af ráðherra án tilnefningar en aðra fulltrúa skipaði ráðherra eftir tilnefningu eftirtalinna: Samtaka ferðaþjónustunnar (3 fulltrúar), Sambands íslenskra sveitarfélaga (2 fulltrúar) Ferðamálasamtaka Íslands (2 fulltrúar) og Íslandsstofu (1 fulltrúi). Skipunartími ferðamálaráðs var fjögur ár en skipunartími formanns og varaformanns var takmarkaður við embættistíma ráðherra. Ferðamálastjóri og fulltrúi ráðuneytisins sátu fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétt.
Ný lög 2018
Með lögum 2018 voru aftur gerðar breytingar á hlutverki ferðamálaráðs en upplýsingar um starfandi ferðamálaráð eru á sérstakri síðu
Fundargerðir ferðamálaráðs 2015-2018
Fundargerðir ferðamálaráðs 2010-2013
|
11. fundur (finnst ekki) |
||
Fundargerðir ferðamálaráðs 2006-2009
Fundargerðir Ferðamálaráðs Íslands til 2005
| 2005 | 2004 | 2003 |
| 2002 | 2001 | 2000 |
| 1999 | Fyrstu fundir árið 1964 | |