Fara í efni

Uppfærsla á gagnagrunni ferðaþjónustunnar

Takk fyrir að taka þátt í að viðhalda gagnagrunni ferðaþjónustunnar!

  • Ef þú hefur valið að upplýsingar um starfsemina séu réttar og þarfnist ekki uppfærslu þá þarftu ekki að bregðast frekar við.
  • Ef þú hefur valið að senda okkur póst og biðja um breytingar sendu þá á netfangið ferdalag@ferdamalastofa.is

Ég valdi að fá aðgang til að breyta sjálfur/sjálf:

  • Ef þú hefur valið að fá aðgang inn í gagnagrunninn til að breyta upplýsingum þá mun fljótlega berast tölvupóstur á það netfang sem þú skráðir frá innskráningarþjónustunni Auth0. Nafn sendanda er API Explorer Application. Í tölvupóstinum eru nánari leiðbeiningar, en þú þarft meðal annars að staðfesta netfangið og velja þér lykilorð fyrir aðganginn.
  • Ef þér berst ekki póstur er gott að byrja á að kíkja í möppu fyrir rusl-póst.
  • Ef þar er enginn póstur gæti netfangið þegar verið skráð sem notandi. Prófaðu að fara á https://db.ferdamalastofa.is og láta kerfið senda þér nýtt lykilorð.

Innskráning í kerfið

Til að skrá þig inn í gagnagrunnskerfið er farið á vefslóðina https://db.ferdamalastofa.is

Þegar þangað er komið þarf að smella á innskráning í efra hægra horninu, þar er skráð inn netfang notendans sem skráður var í kerfið og lykilorð sem valið var fyrir notendann.

Athugið: Breytingar skila sér ekki samstundis út á ferdalag.is vefinn heldur uppfærist grunnurinn þar tvisvar sinnum á sólarhring.

Leiðbeiningar

Hér finnur þú leiðbeiningar um skráningu og viðhald upplýsinga

Ef þú lendir í einhverjum vandræðum. Þá biðjum við þig endilega að hafa samband með tölvupósti gegnum ferdalag@ferdamalastofa.is. Einnig má hringja til Ferðamálastofu milli 10-12 alla virka daga.