Fara í efni

Vesturbæjarhringur frá Neslaug Hlaupaleið

Skemmtileg hlaupaleið á malbikuðum stígum frá Neslaug á Seltjarnarnesi, meðfram sjó og inn á Granda þar sem hægt er að fara upp á listaverkið Þúfu. Um 11 km hringur með lítilli hækkun, að mestu meðfram strönd með útsýni yfir Faxaflóa. Hentar vel í æfingahlaup.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Seltjarnarnes
Upphafspunktur
Neslaug (Sundlaug Seltjarnarness)
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Bundið slitlag
Hættur
  • Umferð hjólandi
  • Umferð bíla
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Sundlaug, salerni og bílastæði við Neslaug við upphaf leiðar. Veitingastaðir á Grandagarði.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi vinsæla hlaupaleið hefst við Sundlaug Seltjarnarness (Neslaug) og liggur um vestasta hluta höfuðborgarsvæðisins. Leiðin fylgir samfelldu kerfi malbikaðra göngu- og hjólastíga, að stórum hluta meðfram sjónum, með útsýni yfir Faxaflóa, Snæfellsjökul í góðu skyggni og út á Gróttu. Hlaupið er inn í Vesturbæ Reykjavíkur og út á Granda og Örfirisey, eitt af athafnasvæðum gömlu hafnarinnar sem á síðari árum hefur breyst í líflegt svæði með veitingastöðum og útivistastígum. Leiðin er um 11 km með óverulegri hækkun, alls um 55 metrum, og hentar því vel í æfingahlaup á jöfnum hraða. Á leiðinni, á Grandagarði, er listaverkið Þúfa eftir Ólöfu Nordal, manngerður grasivaxinn hóll sem gaman er að klífa og fá gott útsýni yfir borgina og höfnina. Stígarnir eru sameiginlegir göngu- og hjólafólki að hluta og því er rétt að sýna aðgát og víkja fyrir hjólandi umferð. Þar sem leiðin er opin og liggur meðfram sjó getur verið vindasamt, en að sama skapi er útsýnið eftir því. Gnægð bílastæða er við Neslaug og góð sundaðstaða við upphafsstað.