Fara í efni

Vatnsendahlíð frá Guðmundarlundi Hlaupaleið

Fjölbreytt utanvegahlaupaleið um óbyggðu Vatnsendahlíð, frá útivistarskóginum Guðmundarlundi í Kópavogi. Um 5,6 km hringur með hóflegri hækkun sem liggur um þrjú ólík vistkerfi: skóg, kjarrlendi og hlíð, með útsýni til Elliðavatns og fjallasýn til allra átta. Skjólsælt og gróskumikið, tilvalið í styttri æfingu.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
Upphafspunktur
Guðmundarlundur
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Blandað yfirborð
  • Votlendi
  • Gras
  • Trjákurl
  • Möl
Hindranir
Vað - Óbrúaður lækur, eyrar eða mýrar
Sumir slóðar geta orðið blautir í vætutíð. Fjölfarnir stígar að sumri; gagnkvæm aðgát hlaupara og hjólafólks.
Hættur
Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Bílastæði, grillaðstaða, minigolf og leiksvæði í Guðmundarlundi við upphaf leiðar.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Á snjóþungum vetrardögum getur verið skynsamlegt að leggja bílum við íþróttahúsið Kórinn.
Þessi leið er fjölbreytt utanvegahlaupaleið sem liggur um óbyggðu Vatnsendahlíð og hefst við Guðmundarlund, vinsælan útivistarskóg í landi Kópavogs ofan við Þingahverfið. Guðmundarlundur á sér fallega sögu; árið 1997 afhentu Guðmundur Jónsson og fjölskylda hans Skógræktarfélagi Kópavogs landspildu þar sem þau höfðu ræktað upp örfoka land, og er lundurinn nefndur eftir gefandanum. Í dag er þar gróskumikill skógur, um 11 hektarar að stærð, með malbikuðum aðalstíg, grillaðstöðu, minigolfvelli og leiksvæði. Frá Guðmundarlundi er hlaupinn hringur um hlíðina og er sama í hvora áttina er farið. Leiðin liggur um þrjú ólík vistkerfi á stuttum tíma: skóginn í Guðmundarlundi þar sem spörfuglar halda sig, kjarrlendi og mólendi Vatnsendahlíðar þar sem mófuglar verpa, og niður að Elliðavatni þar sem sjá má vatnafugla. Fjallasýn er til allra átta í góðu skyggni, og forvitnilegt er að virða fyrir sér misgengisdalina og hugsa til Elliðavatns eins og það var áður en það varð að miðlunarlóni fyrir um einni öld og stækkaði verulega. Leiðin er um 5,6 km með um 140 metra hækkun. Undirlagið er blandað; kurl á skógarstígum, malarvegir og nýlega malbikaðir stígar, en sumir slóðar geta orðið blautir í vætutíð. Leiðin er fær allt árið, en á snjóþungum vetrardögum getur verið skynsamlegt að leggja bílum við íþróttahúsið Kórinn.