Fara í efni

Valahnúkar og Búrfellsgjá Hlaupaleið

Fjölbreytt utanvegahlaupaleið um sögulegt hraunlandslag ofan Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Um 12 km hringur frá Búrfellsgjá að Kaldárseli, milli Helgafells og Valahnúka, umhverfis Valahnúka og yfir hraunbreiður aftan að Búrfelli og Búrfellsgjá. Hraunmyndanir og merkilegar menningarminjar á leiðinni.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Bílastæði við Búrfellsgjá
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Hraun
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hluti leiðarinnar er reiðleið; sýna þarf hestum aðgát. Lausamöl og grýtt hraun á köflum. Vinsæl meðal fjallahjólara.
Hættur
  • Sprungur - Djúp glufa eða brot í bergi eða í jarðvegi sem er á hreyfingu
  • Umferð hjólandi
  • Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bílastæði og fræðsluskilti við Búrfellsgjá.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi leið er fjölbreytt utanvegahlaupaleið um sögulegt hraunlandslag ofan Hafnarfjarðar og Garðabæjar, sem tengir saman nokkur af merkustu náttúrufyrirbærum svæðisins. Leiðin hefst á bílastæðinu við Búrfellsgjá. Þaðan er hlaupið eftir stígum og reiðleið að bílastæðinu við Kaldársel, skammt frá vatnsbóli Hafnfirðinga í Kaldárbotnum. Hlaupið er framhjá vatnsbólinu eftir gönguleiðinni upp að Helgafelli, en í stað þess að ganga á fjallið er haldið áfram milli Helgafells og Valahnúka. Valahnúkar eru móbergshryggur norðan Helgafells, og er hlaupið umhverfis þá. Því næst er tekin hægri beygja og hlaupið yfir hraunbreiður þar til komið er aftan að Búrfelli og Búrfellsgjá. Búrfell er stakur gjall- og klepragígur sem gaus fyrir um 8000 árum, og úr honum rann Búrfellshraun sem myndar undirlag margra hverfa í Hafnarfirði og Garðabæ. Farið er upp á Búrfellsgjá til að njóta útsýnisins, en hún er rúmlega 3,5 km löng hrauntröð frá gígnum. Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2020. Síðan er hlaupið niður Búrfellsgjá og góðri gönguleið fylgt aftur á bílastæðið þar sem leiðin hófst. Í Búrfellsgjá eru einnig merkilegar menningarminjar; Gjáarétt, hlaðin rétt frá 1839 sem var friðlýst sem fornleifar 1964, og Vatnsgjá. Undirlagið er blandað hraun, melar, reiðleiðir og malarstígar, grýtt á köflum. Leiðin er um 12 km með um 150 metra hækkun. Rétt er að hafa varann á vegna sprungna, einkum þegar snjór hylur þær.