Umhverfis Helgafell í Hafnarfirði Hlaupaleið
Skemmtileg hlaupaleið hringinn í kringum Helgafell í Hafnarfirði, tignarlegan móbergsstapa. Um 8,3 km hringur á hraun- og malarslóðum með lítilli hækkun. Fjölbreytt hraunlandslag og gott útsýni um víðáttur Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Bílastæði við Helgafell
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Möl
- Hraun
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hlaupaleið hringinn í kringum Helgafell í Hafnarfirði, tignarlegan móbergsstapa sem rís 338 metra yfir sjávarmáli, en leiðin fer ekki upp á fjallið sjálft. Hlaupið hefst á bílastæðinu við Helgafell og farið eftir vel merktum stíg umhverfis fjallið. Slóðanum er fylgt áfram meðfram austur- og suðurhlið Helgafells þar til komið er aftur að upphafsstígnum. Undirlagið er fjölbreytt hraunlandslag; melar, klappir og helluhraun, og leiðin er fremur hlaupvæn með lítilli hækkun, um 70–90 metrum. Á leiðinni er gott útsýni um víðáttur Hafnarfjarðar, Helgafell og yfir hraunið í kring. Leiðin er um 8,3 km hringur og hentar flestum í sæmilegu formi. Svæðið er vatnsverndarsvæði og ber að ganga vel um. Bílastæði er við upphafsstað.