Úlfarsfell frá Úlfarsfellsvegi Hlaupaleið
Vinsæl hlaupaleið upp á Úlfarsfell frá Úlfarsfellsvegi, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Um 4,3 km hringur upp á Stórahnúk með glæsilegu útsýni í allar áttir. Aðgengileg og hentar allt árið.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær
Upphafspunktur
Bílastæði við Úlfarsfellsveg
Merkingar
Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Úlfarsfell er þægilegt og skemmtilegt fell á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar sem hentar vel til hlaups allt árið um kring og er við flestra hæfi. Þessi leið hefst við bílastæðið við Úlfarsfellsveg og liggur upp á Stórahnúk, hæsta hluta fellsins. Hlaupið er upp vel markaðan stíg og leiðin er fremur hlaupvæn neðst en brattari þegar ofar dregur, með um 250 metra hækkun. Efst á Stórahnúk er glæsilegt útsýni í allar áttir, yfir höfuðborgarsvæðið, Esjuna, Mosfellsdal og til fjalla. Leiðin er hringur, um 4,3 km, og undirlagið er blandað: mold, melur og grjót. Niðurleiðin hentar vel til að æfa utanvegahlaup niður í móti. Fellið er vinsælt til útivistar árið um kring og vel sótt af hlaupurum og göngufólki. Bílastæði er við upphafsstað.