Úlfarsfell frá skógræktinni Hlaupaleið
Vinsæl hlaupaleið á Úlfarsfell sem hefst við skógræktarsvæðið í Hamrahlíð í vesturhlíðum fjallsins. Hlaupið er upp á hæsta tind, þar sem víðsýnt er yfir höfuðborgarsvæðið. Hlaupið er niður tröppurnar að Skarhólamýri og til baka meðfram Úlfarsfelli til baka. Fjölbreytt leið með tröppum á bröttustu köflunum.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær
Upphafspunktur
Skógræktin í Hamrahlíð, vesturhlíð Úlfarsfells
Merkingar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
- Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Möl
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Tröppur á bröttustu köflum. Getur verið hvasst og hált á toppi.
Hættur
Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bílastæði við upphaf. Gestabók á toppi.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Úlfarsfell er meðal vinsælustu útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu og fjöldi merktra stíga liggur um fjallið. Þessi hringleið hefst við skógræktarsvæðið í Hamrahlíð í vesturhlíðum fellsins þar sem góð bílastæði eru. Skógræktarfélag Mosfellsbæjar sér um svæðið, en skógrækt hófst þar á fyrri hluta 20. aldar. Í skóginum má finna birki, sitkagreni og rauðgreni. Hlaupið er meðfram Úlfarsfelli upp á hæsta tind fjallsins, sem þekkist á fjarskiptamöstrunum, eftir merktum stígum. Af toppnum er víðsýnt yfir höfuðborgarsvæðið. Mosfellsbær hefur lagt vandaða stíga og sett tröppur á bröttustu köflunum á leiðnni niður. Leiðin liggur svo til baka undir hlíðum Úlfarsfells eftir hitaveitustokk og að skógræktinni sem myndar hring, um 5,7 km með um 274 m hækkun. Gott er að huga að veðri, enda getur verið hvasst á toppnum þótt skjólgott sé í skóginum.