Tvísöngur Gönguleið
Stutt og falleg ganga frá Seyðisfirði að Tvísöng, hljóðskúlptúr eftir þýska listamanninn Lukas Kühne. Gangan liggur upp í hlíðina ofan bæjarins og býður upp á fallegt útsýni yfir Seyðisfjörð.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Austurland, Múlaþing
Upphafspunktur
Bílastæði við upphaf gönguleiðar við Hafnargötu á Seyðisfirði
Merkingar
Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Bratti á köflum og ójafnt malaryfirborð. Leiðin getur verið hál í bleytu og slóðin getur orðið ófær í miklum snjó.
Hættur
Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan að Tvísöng hefst í Seyðisfirði og liggur eftir göngustíg upp í hlíðina sunnan fjarðarins. Leiðin er fremur stutt en hækkar jafnt og þétt á leiðinni. Þegar ofar dregur opnast fallegt útsýni yfir bæinn, fjörðinn og fjöllin í kring.
Við enda leiðarinnar stendur Tvísöngur, sérstæður hljóðskúlptúr sem samanstendur af fimm samtengdum hvelfingum. Hver hvelfing hefur sinn hljóm og er skemmtilegt að prófa hljómburðinn inni í verkinu. Sama leið er farin til baka. Gangan er um 35-40 mínútur fram og til baka.