Fara í efni

Stríðsárin á Raufarhöfn Gönguleið

Gönguleið um sögu hernámsins á Raufarhöfn á árunum 1940–1943. Leiðin liggur um höfnina, Framnes, Hjaltabakka og upp á Nónás þar sem sjá má Bretastangir, húsgrunna og aðrar minjar eftir breska herinn. Fallegt útsýni yfir þorpið og nærliggjandi svæði

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
Félagsheimilið á Raufarhöfn, Hnitbjörg Aðalbraut 27
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Blandað yfirborð
  • Gras
  • Þýft
  • Stórgrýtt
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
  • Tjaldsvæði
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi gönguleið kynnir sögu hernámsáranna á Raufarhöfn og þau ummerki sem enn má sjá eftir veru breskra og síðar bandarískra hermanna. Þann 10. maí 1940 stigu breskir hermenn fyrst á land á Raufarhöfn þegar þeir komu til Íslands. Í fyrstu bjuggu þeir í tjöldum og höfðu aðsetur í nokkrum húsum í þorpinu sem þeir tóku yfir. Síðar reistu þeir braggabúðir á Nónási vestan við þorpið, þar sem höfuðstöðvar þeirra voru. Hermennirnir voru um 50 talsins og samskipti þeirra við heimamenn voru almennt mjög góð. Eftir komu bandaríska hersins árið 1943 hurfu Bretarnir á brott. Gangan hefst við félagsheimilið Hnitbjörg og liggur að gamla skólanum, sem var eitt af þeim húsum sem hernámsliðið notaði. Þaðan er gengið niður að höfninni og meðfram henni að svæðum þar sem nokkur af elstu húsum þorpsins stóðu. Leiðin heldur áfram út á Framnes, þar sem hermenn stóðu vaktir vegna góðs útsýnis yfir hafið. Síðan er farið fram hjá svæðinu þar sem tjöld þeirra stóðu og áfram að Kottjörn við Hjaltabakka. Þaðan liggur leiðin um yngri hluta þorpsins, þar sem áður var skotæfingarsvæði hersins, og síðan upp á Nónás. Þar má enn sjá Bretastangirnar, húsgrunna og aðrar minjar um braggabúðirnar. Frá ásnum er gengið eftir veginum sem Bretarnir lögðu og notuðu. Á leiðinni niður blasir við fallegt útsýni yfir þorpið og nærliggjandi svæði. Göngunni lýkur þar sem hún hófst, við Hnitbjörg.