Ríkishringurinn í Heiðmörk Hlaupaleið
Ein vinsælasta utanvegahlaupaleið höfuðborgarsvæðisins, um 12 km hringur í hjarta friðlandsins í Heiðmörk. Skjólsæl og fjölbreytt leið um skóg og meðfram vötnum á mjúkum stígum. Rómaður þjálfunarhringur sem hentar vönum hlaupurum í góðu formi.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Bílastæði við Helluvatn í Heiðmörk
Merkingar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
- Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Blandað yfirborð
- Möl
- Trjákurl
Hættur
- Hálka - Hál og sleip leið
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Leiðin er óaðgengileg hluta vetrar vegna snjólaga og klaka
Ríkishringurinn er ein þekktasta og vinsælasta utanvegahlaupaleið höfuðborgarsvæðisins og liggur um hjarta friðlandsins í Heiðmörk sem er í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur. Nafnið varð til í hlaupahópi um árin 2009–2010 og hefur fest sig í sessi. Leiðin er um 12 km og samanstendur af nokkrum merktum undirhringjum svæðisins, meðal annars Vatnahring, Strípshring, Skógarhring og Norðmannahring. Hringurinn sjálfur er ekki sérmerktur, svo gott er að skoða kort af Heiðmörk fyrir fyrstu ferð eða fara með einhverjum sem þekkir leiðina. Mælt er með að hlaupa réttsælis og beygja jafnan til vinstri. Hækkun er hófleg, um 160 metrar í heild, en undirlagið er mjúkir skógarstígar og malarstígar sem gera leiðina að góðum styrktar- og þolæfingahring. Heiðmörk er gróin og skjólsæl og því kjörin í hvassviðri. Á sumardögum er búast við töluverðri umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi, og þurfa hlauparar og hjólafólk að sýna gagnkvæma aðgát. Bílastæði eru við Helluvatn og víðar í Heiðmörk. Svæðið er friðland og því ber að ganga vel um náttúruna.