Fara í efni

Rifstangi á Melrakkasléttu Gönguleið

Rifstangi er nyrsti tangi á meginlandi Íslands og liggur næst heimskautsbaugnum. Gönguleiðin liggur frá afleggjara að tanganum um greiðfæran slóða með fallegu útsýni yfir Rauðanúp og Hraunhafnartanga. Á svæðinu er fjölbreytt fuglalíf, kyrrð og einstök upplifun af sólarupprásum og sólsetri.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
Afleggjari að Rifstanga frá vegi 870 á Melrakkasléttu.
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
  • Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
  • Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
  • Blandað yfirborð
  • Gras
  • Möl
  • Stórgrýtt
  • Þýft
  • Votlendi
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Sjávarföll - Breytileg staða sjávar, flóð og fjarða
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Rifstangi er nyrsti tangi á meginlandi Íslands. Áður fyrr þá náði norður heimskautsbaugur inn á tangann og var hluti af Rifstanga því staðsettur norðan við heimskautsbauginn. Heimskautsbaugurinn er hins vegar genginn út af tanganum og liggur nú allur Rifstangi sunnan við bauginn. Rifstangi er engu að síður sá hluti meginlandsins sem er staðsettur næst heimskautsbaugi sem gerir hann að mögnuðum stað til að upplifa sólris og sólsetur. Einstakt er að horfa á sólina hverfa í sæinn þegar hún er að setjast og rísa úr honum við sólris. Mikið dýralíf er á staðnum og má gjarnan heyra í melrökkum sem eiga greni á þessum slóðum. Staðurinn er friðsæll og er mikil kyrrð í fjölbreyttu fuglalífinu sem kemur fram í misfögrum fuglasöng. Gönguleiðin hefst við afleggjarann sem er staðsettur í um 17 km keyrslufjarlægð frá Raufarhöfn. Þaðan er gengið vegslóðann niður að Rifi. Slóðinn er vel göngufær en verður grýttur þegar nálgast fer tangann. Á leiðinni sést Rauðinúpur vel í vestur og Hraunhafnartangi í austur. Frá tanganum er gengið kindaslóða að Rifshúsinu og svo aftur frá húsinu að vegslóðanum. Ef áhugi er að labba aðra leið til baka þá er hægt að fylgja vörðunum sem eru staðsettar á áshryggnum á austanverðu landinu. Sú leið er örlítið styttri en undirlag hennar er grýttara.