Fara í efni

Reynisvatnshringur Hlaupaleið

Fjölbreytt utanvegahlaupaleið við Reynisvatn austan Grafarholts. Um 9,5 km hringur sem nýtir stíginn um vatnið og tengist stígakerfi Austurheiða. Skjólsælt og friðsælt umhverfi með grónum skógi og fjölskrúðugu fuglalífi með hófleg hækkun.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Bílastæði við Reynisvatn
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Möl
  • Trjákurl
  • Blandað yfirborð
Hættur
  • Engar hættur á leiðinni
  • Umferð hjólandi
  • Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bekkir við Reynisvatn
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Reynisvatnshringur er fjölbreytt utanvegahlaupaleið við Reynisvatn, lítið og friðsælt stöðuvatn austan við Grafarholt í Reykjavík. Vatnið er umlukið grónum skógi sem veitir skjól og laðar að fjölbreytt fuglalíf, einkum mófugla á vorin og sumrin. Greiðfær og vel merktur stígur liggur hringinn í kringum vatnið, um 1,3 km, en þessi leið er lengri hringur sem nýtir tengingu Reynisvatns við stígakerfi Austurheiða og fer út í holtin í kring. Leiðin er um 9,5 km með hóflegri hækkun, alls um 145 metrum, og hentar vel í æfingahlaup. Umhverfið er fjölbreytt: jökulsorfin grágrýtisholt, fornar jarðmyndanir, sprungur og misgengi setja svip sinn á landslagið, og gróðurfar er fjölbreytt með mosa, lyngmóum og graslendi. Bekkir eru á völdum stöðum við vatnið þar sem hægt er að setjast niður og njóta umhverfisins. Reynisvatn tengist stígakerfi sem spannar svæðið frá Rauðavatni yfir að Langavatni, svo auðvelt er að lengja eða breyta leiðinni. Bílastæði er við vatnið. Vatnshringurinn sjálfur er vel merktur en sá hluti leiðarinnar sem fer út í heiðina er það síður, svo gott er að þekkja leiðina eða hafa kort í úrinu.