Fara í efni

Ólafsvatn á Melrakkasléttu Gönguleið

Ólafsvatn á Austur-Sléttu er stórt og fallegt stöðuvatn ríkt af fugla- og dýralífi. Gönguleiðin hefst við gömlu spennustöðina, liggur fram hjá stríðsminjum, yfir ása og að Kerlingarhömrum. Við vatnið njóta gestir kyrrðar og náttúrufegurðar. Mýrlent er á köflum og því eru vatnsheldir skór eða stígvél ráðlögð.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
gamla spennistöð
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
  • Gras
  • Þýft
  • Votlendi
  • Blandað yfirborð
Hindranir
  • Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
  • Vað - Óbrúaður lækur, eyrar eða mýrar
Hættur
Vað - Óbrúaður lækur/á, eða votlendi/mýrar
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Ólafsvatn er eitt af stærstu stöðuvötnum á Austur-Sléttu um 0,2 ferkílómetrar að stærð. Vatnið er staðsett í ósnortinni náttúru og var svæðið lengi vel griðastaður álftapars sem lögðu leið sína þangað ár hvert til að hreiðra um sig. Ólafsvatn er auðugt af dýralífi en silungur er í vatninu og stundum má sjá tófuspor leynast á bakkanum. Fuglalíf er einnig mikið og sækja ýmsar fuglategundir með ungana sína á vatnið yfir sumartímann, í sinn fyrsta sundsprett. Gangan hefst á bílastæðinu við gömlu spennustöðina og þaðan er haldið suður stíginn upp Nónásinn. Gengið er meðfram girðingunni þar til komið er að gömlum rústum. Rústirnar eru leifar af bröggum sem reistir voru af breskum hermönnum í seinni heimstyrjöldinni og höfðu hermennirnir aðsetur í bröggunum yfir þann tíma sem þeir voru staðsettir á Raufarhöfn. Frá rústunum er gengið í átt að stiganum sem fer yfir girðinguna og haldið áfram vestur. Leiðin liggur að Miðásnum og meðfram honum. Sunnan við Miðásinn er falleg laut þar sem kjörið er að setjast niður og nesta sig áður en ferðinni er haldið áfram. Frá lautinni er gengið í smá spöl til viðbótar meðfram Miðásnum og í átt að Kerlingarhömrum. Fljótlega eftir að komið er framhjá Kerlingarhömrum þá er Ólafsvatnið vel sýnilegt og einungis smá ganga þar til áfangastaðnum er náð. Gönguleiðin er bæði á stígum og á slóðum en þegar nálgast fer vatnið þá liggur hún í gegnum þúfótt mýrasvæði. Því er öruggast að vera í stígvélum eða í vatnsheldum skóm svo að fæturnir blotni ekki á leiðinni.