Naustaborgir - Súluvegur Blönduð leið (ganga og hjól)
Í Naustaborgum er mikil náttúrufegurð, fjölbreyttar gönguleiðir, menningarminjar og fuglaskoðunarhús. Naustaborgir eru útivistarsvæði suðvestan við bæinn sem samtengt er við Kjarnaskógarsvæðið og golfvöllinn og tengist Súluvegi um stíg sem liggur upp á Eyrarlandshálsinn.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
65.663644, -18.107112 (65° 39.819'N, 18° 6.427'W)
Merkingar
- Skiltuð án annarra merkinga - merkt leið með skiltum sem vísa leið
- Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Blandað yfirborð
- Gras
- Votlendi
Hindranir
Vað - Óbrúaður lækur, eyrar eða mýrar
Hættur
- Hálka - Hál og sleip leið
- Umferð hjólandi
- Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Í Naustaborgum er mikil náttúrufegurð, fjölbreyttar gönguleiðir, menningarminjar og fuglaskoðunarhús.
Naustaborgir eru útivistarsvæði suðvestan við bæinn sem samtengt er við Kjarnaskógarsvæðið og golfvöllinn. Á sumrin er svæðið tilvalið til fuglaskoðunar m.a. úr fuglaskoðunarhúsi sem þar er. Hægt er að velja mismunandi stíga í Naustahverfi og halda þaðan áfram upp á Eyrarlandshálsinn eftir kindagötum og slóðum um skógivaxið svæði.
Þegar upp á hálsinn er komið er bílastæðið fyrir Fálkafell þar til vinstri og Súluvegur rétt þar fyrir neðan.
Athugið að km talan og timalengdin er miðuð við aðra leiðina.
Hægt er að velja um mismunandi leiðir tilbaka allt eftir getu og áhuga.
Þegar upp á hálsinn er komið er bílastæðið fyrir Fálkafell þar til vinstri og Súluvegur rétt þar fyrir neðan.
Athugið að km talan og timalengdin er miðuð við aðra leiðina.
Hægt er að velja um mismunandi leiðir tilbaka allt eftir getu og áhuga.