Lögmannshlíð Gönguleið
Gönguleið fyrir ofan Akureyri eftir malarvegi annarsvegar meðfram Lónsánnig um hesthúsahverfið, fram hjá Lögmannshlíðarkirkju og um sveitarveg.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
65.676977, -18.166709 (65° 40.619'N, 18° 10.003'W)
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Möl
Hindranir
- Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
- Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Hættur
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
- Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Göngu og hjólaleiðin liggur um svæðið fyrir ofan og vestan við Akureyri. Leiðin liggur meðfram Lónsánni, eftir sjálfri Lögmannshlíðinni þar sem fram fer mikil skógrækt suður að Lögmannshlíðarkirkju.
Hjá hesthúsahverfinu er gengið inn Safírstræti í áttina að dýraspítalanum þaðan sem haldið er til vinstri eftir malarbornum reiðvegi til norðurs að Lónsá og þaðan áfram leggurinn niður að þjóðvegi 1 sömu leið og í upphafi göngunnar. Athugið að hluta af leiðinni er gengið á reiðleið og eru gangandi vegfarendur beðnir að taka tillit til þess! Einnig má geta þess að á laugardögum (fyrir hádegi) og miðvikudögum (eftir hádegi) fer fram rekstur á þessari leið, oft með miklum fjölda hesta.