Frá Laugardal um Skarfaklett og Voga Hjólaleið
Skemmtileg og fjölbreytt 12 km hjólaleið sem hefst í Laugardalnum og liggur meðfram sjónum um Laugarnes og Skarfaklett. Fallegt útsýni, menningarminjar og græn svæði gera leiðina tilvalda fyrir alla sem vilja njóta útivistar í borginni.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Laugardalur
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Bundið slitlag
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi fjölbreytta og fallega 12 km hjólaleið hefst í hjarta Laugardalsins. Frá upphafsstað er hjólað fram hjá Ásmundarsafni, þar sem verk hins þekkta myndhöggvara Ásmundar Sveinssonar prýða garðinn. Síðan er beygt til hægri niður að Sæbraut og farið yfir götuna í átt að Laugarnestanga. Þar er stígur meðfram ströndinni með fallegu útsýni yfir sundin og Viðey. Hér má einnig finna safn Sigurjóns Ólafssonar sem gaman er að heimsækja. Áfram liggur leiðin að Skarfakletti, vinsælum viðkomustað fyrir sjósund og ferjuna sem siglir yfir til Viðeyjar. Hér er tilvalið að staldra við og njóta útsýnisins. Haldið er áfram eftir Vatnagörðum og í gegnum Skútuvog. Farið er eftir stíg sem liggur frá Bátavog og þaðan aftur yfir Sæbrautina að hjólastígnum til vinstri þangað til komið er aftur að Laugardalnum.
Lokaspretturinn liggur í gegnum stíga Laugardalsins þar sem tré, blóm og græn svæði bjóða hjólafólki góðan endi á skemmtilegum hring.