Fara í efni

Kringum Helgafell um Valaból Hlaupaleið

Utanvegahlaupaleið sem liggur hringinn í kringum Helgafell í Hafnarfirði, um Valaból og meðfram Valahnúkum. Um 9,5 km hringur á hraun- og malarslóðum með lítilli hækkun. Fjölbreytt hraunlandslag, sögulegar minjar og skógræktarlundurinn Valaból með Músarhelli á leiðinni.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Bílastæði við enda Kaldárselsvegar
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Hraun
  • Blandað yfirborð
Hættur
  • Engar hættur á leiðinni
  • Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bílastæði við enda Kaldárselsvegar.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi leið liggur hringinn í kringum Helgafell í Hafnarfirði, tignarlegan móbergsstapa sem rís 338 metra yfir sjávarmáli, en fer ekki upp á fjallið sjálft. Leiðin hefst við bílastæðið við enda Kaldárselsvegar, skammt frá vatnsbólum Hafnfirðinga í Kaldárbotnum, og fylgir slóð sem liggur umhverfis fjallið. Undirlagið er fjölbreytt hraunlandslag; melar, sandar, klappir og helluhraun. Á leiðinni er farið með fram Valahnúkum, móbergshrygg norðan Helgafells, og komið að Valabóli, fallegum skógræktarlundi sem Bandalag íslenskra farfugla hóf að rækta upp rétt eftir 1940. Þar er Músarhellir, lítill hellir sem lengi var notaður sem afdrep smalamanna og síðar sæluhús Farfugla. Austan megin fjallsins má sjá klettadranginn Riddarann. Leiðin er um 9,5 km með lítilli hækkun, um 100 metrum, og er hluti af því sem stundum er kallað „Helgafellsáttan“. Hún er vinsæl meðal hlaupara og fjallahjólara. Við Kaldársel eru friðlýstar fornminjar, meðal annars bæjarrústir og fjárhústóft. Bílastæði er við upphafsstað. Svæðið er vatnsverndarsvæði og ber að ganga vel um.