Fara í efni

Hrísey - Rauðaleiðin Gönguleið

Vinsæll hringur en einn sá lengri í eyjunni. Kemur við hjá mörgum helstu áhugaverðum stöðum eyjarinnar og má þar nefna þorpið, fiskitrönurnar, Borgarbrík og Orkulindia. Flestir geta farið þennan hring á u.þ.b. 1,5-2 klst.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
65.978793, -18.380088 (65° 58.728'N, 18° 22.805'W)
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Skiltuð án annarra merkinga - merkt leið með skiltum sem vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Hættur
  • Hálka - Hál og sleip leið
  • Umferð bíla
  • Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Vinsæll hringur en einn sá lengri í eyjunni. Kemur við hjá mörgum helstu áhugaverðum stöðum eyjarinnar.

Falleg gönguleið frá höfninni og þorpinu, upp á eyjuna og meðfram austurströnd eyjarinnar þar sem m.a. er gengið fram hjá fiskitrönum, í gegnum trjáreit, yfir móa og niður að klettóttri austurströnd eyjarinnar. Á suðurhluta eyjarinna má sjá listaverkið Yggldrasil, komið við í orkulindinni og gengið í gegnum skjólsælan skógarreit og áfram yfir á vesturhlutann inn í þorpið þar sem hringnum er lokið.

Gangan hefst við höfnina og stefna er tekin í átt að kirkunni í "miðbænum á Hrísey", þaðan er gengið eftir aðalgötunni Norðurvegi til norðurs (vinstri). Gengið er m.a. framhjá búðinni, kirkjunni og söfnum eyjarinnar, sumt í upphafi göngu annað í lokin. Frá Norðurvegi er gengið í gegnum hvannarsvæði upp að og fram hjá fiskitrönunum eftir góðum göngustíg. 
Við næstu gatnamót er beygt til vinstir og gengið yfir eyjuna, yfir á austurströndina og niður að Borgarbrík, tilkomumiklum klettum með góðu útsýni yfir á Látraströndina handan fjarðarins.

Á austurströndinni má sjá fjölbreyttar klettamyndanir, innskot og sker og ef heppnin er með göngufólkinu er oft á tíðum hægt að sjá til hvala útfyrir ströndinni. Leiðin liggur hjá minjum um forna búsetu, bænum Hvatastöðum og mógröfum.

Leiðin liggur áfram að útilistaverkinu Yggldrasil sem afhjúpað var árið 1998. Bandaríski listamaðurinn David Hebb fékk Fullbright styrk til listsköpunar í Hrísey og átti verkið að tengja norræna goðafræði eða ásatrú við ímynd nútímaiðnaðar og iðnverka með einhverjum hætti. Verkið er um fjórir metrar í þvermál og þriggja metra hátt. Eiginleikar þess fela í sér að það muni geta fallið og hrörnað, jafnvel horfið á vit náttúrunnar innan nokkurra ára og er efniviður þess stál, grjót, steypa og gull ásamt öðrum jarðefnum og hrísla er á hnjúki verksins.

Frá listaverkinu er gengið áfram eftir góðum stíg til suðurs (inn fjörðinn) að orkulindinni þar sem bekkir bíða þreyttra göngugarpa sem þar geta safnað ríkulegrar orku. Frá lindinni er gengið í gegnum skjólsælan skógarreit og framhjá lítilli tjörn áður en aftur er komið niður á veginn sem liggur að þorpinu.

Flestir geta farið þennan hring á u.þ.b. 1.5-2 klst.