Hobbitastígur og Vífilshlíð – stutt útgáfa Hlaupaleið
Stutt og létt byrjendaútgáfa af Hobbitastígshring við Vífilsstaðahlíð. Um 5,5 km hringur við Vífilsstaðavatn og neðanverða Vífilsstaðahlíð, með lítilli hækkun á mjúkum mold- og malarstígum. Aðgengileg og skjólsæl leið, tilvalin fyrir styttri æfingar og þá sem eru að byrja í utanvegahlaupum.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Bílastæði við hringhlið við enda Vífilsstaðahlíðar
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Blandað yfirborð
- Möl
Hættur
- Engar hættur á leiðinni
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bílastæði, bekkir og fræðsluskilti
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hundar bannaðir í friðlandinu við Vífilsstaðavatn um varptímann.
Hundar bannaðir í friðlandinu við Vífilsstaðavatn um varptímann.
Þessi leið er stutt og létt útgáfa af Hobbitastígshringnum í Vífilsstaðarhlíð og hentar vel byrjendum í utanvegahlaupum eða þeim sem vilja styttri æfingu. Leiðin hefst við bílastæði við enda Vífilsstaðahlíðar en svæðið var friðlýst árið 2007 og er rómað fyrir fjölbreytt fugla- og dýralíf. Hlaupið er upp neðanverðan Hobbitastíginn, sem hlauparar á svæðinu þekkja vel, og um neðri hluta Vífilsstaðahlíðar, en þessi útgáfa sleppir efri hluta stígsins og bröttustu köflunum sem lengri leiðin fer um. Undirlagið er að mestu þjappaðir moldarstígar og góðir malarstígar sem henta vel til hlaupa. Leiðin er um 5,5 km hringur með lítilli hækkun, aðeins um 50 metrum, og er því þægileg og aðgengileg. Vífilsstaðahlíð er skjólsæl og gróin og því kjörin í hvassviðri. Garðabær hefur byggt upp góða aðstöðu á svæðinu með bílastæðum, bekkjum, fræðsluskiltum og kortum við aðkomu. Á sumardögum er nokkur umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi, og rétt að sýna aðgát. Þar sem svæðið er að hluta friðland ber að ganga vel um náttúruna; hundar eru bannaðir í friðlandinu um varptímann. Þeir sem vilja lengri og meira krefjandi leið geta valið 8 km útgáfuna af Hobbitastíg og Vífilsstaðahlíð.