Fara í efni

Hlíðahringur í Heiðmörk Gönguleið

Hlíðahringur liggur frá Maríuhellum að Vífilsstaðavatni, framhjá Grunnuvötnum eftir Hjöllum og síðan Vífilsstaðahlíð.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Borgarstjóraplan
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hlíðahringur er um tíu kílómetra hringleið um fjölbreytt landslag Heiðmerkur, eins vinsælasta útivistarsvæðis höfuðborgarsvæðisins. Lagt er af stað frá Borgarstjóraplani við Maríuhella og hlaupið í átt að Vífilsstaðavatni, framhjá Grunnuvötnum, eftir Hjöllum og áfram um Vífilsstaðahlíð áður en haldið er til baka að upphafsstað. Leiðin liggur um birkiskóg, hraun og opið mólendi, og á köflum er fallegt útsýni yfir Heiðmörk, Vífilsstaðavatn og nágrennið. Stígarnir hafa verið endurbættir töluvert á síðustu árum og liggja nú að mestu um vel gerða göngustíga svo leiðin er greiðfær til göngu. Hækkunin er hófleg, samanlagt um 140 metrar með nokkrum löngum en aflíðandi brekkum. Undirlagið er blandað náttúrulegt efni, mold, melur og grjót, og leiðin er merkt og vel sýnileg. Heiðmörk er í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur og nánari upplýsingar um svæðið má finna á heidmork.is. Bílastæði er við upphafsstað.