Fara í efni

Hjalteyri - stutt leið Gönguleið

Stutt og skemmtileg hringleið fyrir alla fjölskylduna.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Hörgársveit
Upphafspunktur
Bílastæði við Verksmiðjuna
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Tjaldsvæði
Á Hjalteyri er meðal annars veitingastaður, tjaldstæði, heitur pottur og WC aðstaða. Einnig ýmis önnur þjónusta í boði.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst á bílastæðinu við verksmiðjuna. Gengið er í átt til sjávar og haldið beint í norður meðfram sjónum. Beygt til vinstri við enda vatnsins og gengið eftir malarstíg í gegnum skóginn og aftur að verksmiðjunni. Stutt og skemmtileg leið, borð og bekkir á leiðinni og hægt að borða nesti.