Fara í efni

Hjalteyri - stór hringur Gönguleið

Um 7,5 km hringur sem er aðeins krefjandi, stundum í þýfðu landslagi og eftir óljósum stígum á köflum.Frábært útsýni yfir Eyjafjörðinn.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Hörgársveit
Upphafspunktur
Verksmiðjan á Hjalteyri
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
  • Þýft
  • Blandað yfirborð
  • Gras
  • Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
  • Hálka - Hál og sleip leið
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
  • Tjaldsvæði
Á Hjalteyri er að finna ýmsa þjónustu.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst við Verksmiðjuna á Hjalteyri. Þaðan er haldið norður meðfram strandlínunni, eftir slóða. Haldið er áfram eftir ströndinni, framhjá vatninu og aðeins lengra til norðurs þar sem beygt er upp frá sjónum. Þar er smá hækkun upp á bakkann ofan strandarinnar. Á efri hlutanum liggur leiðin yfir opið en oft nokkuð þýft land með góðu útsýni yfir Eyjafjörð. Þegar komið er að nöfinni nyrst er haldið til suðurs meðfram vestari brún á ræktuðu túni að slóða sem liggur að vegi. Genginn er vegurinn að Hótel Hjalteyri og þaðan niður að verksmiðjunni aftur.