Helgafellshringur frá Varmárlaug Hlaupaleið
Skemmtileg fjallahlaupaleið á Helgafell í Mosfellsbæ (216 m), sem hefst við íþróttamiðstöðina við Varmá. Um 8 km hringur með hóflegri hækkun eftir stikuðum stígum upp á fellið og hring til baka. Gott útsýni yfir Mosfellsbæ, Esju og Hafravatn, ásamt sögulegum minjum á toppi.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær
Upphafspunktur
Íþróttamiðstöðin við Varmá (Varmárlaug)
Merkingar
Skiltuð án annarra merkinga - merkt leið með skiltum sem vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
- Blandað yfirborð
- Votlendi
Hindranir
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Niðurleiðin er brött á köflum og laus í sér; mikill halli á kafla og fara ber með gát. Getur verið hvasst á toppi.
Hættur
- Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
- Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Sundlaug, salerni og bílastæði við íþróttamiðstöðina að Varmá (Varmárlaug).
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi leið er skemmtileg fjallahlaupaleið á Helgafell, eitt af bæjarfjöllum Mosfellsbæjar, sem rís 216 metra yfir sjávarmáli. Leiðin hefst við íþróttamiðstöðina við Varmá, þaðan sem meðal annars Tindahlaup Mosfellsbæjar er ræst, og fylgir göngustígum upp að fellinu. Gönguleiðin upp fjallið er merkt með stikum og liggur á ská upp hlíðina. Áður en lagt er á brattann má sjá litla laut í fjallinu, sem eru leifar af gullnámu frá því um aldamótin 1900, þar sem grafið var eftir gulli án árangurs. Þegar upp er komið er stutt ganga að hæsta punkti fellsins. Af fellinu er víðsýnt yfir Mosfellsbæ, Esju og sundin, og með því að ganga út á suðurbrúnir sést vel yfir Hafravatn og til Bláfjalla. Leiðin er um 8 km með um 218 metra hækkun og myndar hring. Undirlagið er blandað; malbikaður göngustígur í byrjun og síðan stikaðir mold- og malarstígar upp fjallið. Rétt er að hafa í huga að niðurleiðin er brött á köflum og laus í sér, svo fara ber með gát. Mosfellsbær hefur unnið gott starf við að merkja og stika gönguleiðir bæjarins. Bílastæði og sundlaug eru við Varmá.