Heimskautsgerðið á Raufarhöfn Blönduð leið (ganga og hjól)
Heimskautsgerðið á Melrakkaási við Raufarhöfn er einstakt listaverk og stjörnuskoðunarstaður sem tengir saman sólargang, náttúru og fornnorræna menningu. Fjögur hlið þess marka jafndægur og sólstöður. Gönguleiðin frá Hótel Norðurljós leiðir gesti að gerðinu þar sem njóta má stórbrotinnar birtu og útsýnis.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
Hótel Norðurljós Aðalbraut 2
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Möl
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Heimskautsgerðið stendur á Melrakkaási við Raufarhöfn, nyrsta bæ Íslands, þar sem heimskautsbaugur liggur næst þéttbýli á landinu. Svæðið er þekkt fyrir einstaka birtu, langa sumardaga, miðnætursól á sumrin og stórbrotna norðurljósasýn yfir vetrarmánuðina.
Heimskautsgerðið er um 50 metrar í þvermál og byggt sem minnisvarði um tengsl mannsins við náttúruna, stjörnuhimininn og fornnorræna menningu. Fjögur sex metra há hlið vísa til höfuðáttanna og eru kennd við dvergana Norðra, Suðra, Austra og Vestra, sem samkvæmt norrænni goðafræði halda uppi himninum. Í miðju hringsins stendur 10 metra há súla á fjórum stöplum og aðkoman er um brúna Bifröst, sem dregur nafn sitt af regnbogabrúnni milli heima goða og manna og verndar jafnframt viðkvæman gróður á svæðinu.
Samkvæmt framtíðarsýn verkefnisins munu fjórir skúlptúrar rísa innan hringsins. Sá fyrsti, Altari elds og vatns, var reistur árið 2025 og táknar frumkraftana eld og vatn. Einnig er fyrirhugaður hringur steina sem tengist dvergatali Völuspár, þar sem 72 dvergar munu tengjast tímum ársins og gestir geta fundið sinn dverg út frá afmælisdegi og fræðst um gömul mánaðarheiti og norræna goðafræði.
Gönguleiðin hefst við Hótel Norðurljós og liggur upp Klifagötu að Sléttuvegi. Þaðan er gengið að Melrakkaási og yfir brúna Bifröst að Heimskautsgerðinu. Eftir heimsókn að gerðinu liggur leiðin sömu leið til baka og endar við hótelið.
Frekari upplýsingar um Heimskautsgerðið, skúlptúrana og framtíðarsýn verkefnisins má finna á arctichenge.com.