Grímsey suðurhlutinn Blönduð leið (ganga og hjól)
Gönguleið að suðurhluta eyjarinnar þar sem m.a. má sjá vitann, fuglabjörg, fagra stuðlabergsvíkur og hólma, aldamótasteina og Miðgarðakirkju.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
66.539452, -18.015574 (66° 32.367'N, 18° 0.934'W)
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
3 - 4 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Gras
- Blandað yfirborð
Hindranir
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni Gönguleiðin er að mestu eftir ójöfnum vegslóða þar sem oft myndast pollar, undirlagið grjót, gras eða mold.
Hættur
- Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
- Hálka - Hál og sleip leið
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
- Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
Í þorpinu og við kirkjuna eru snyrtingar. Tjaldsvæði er í þorpinu og rusladallar, en sorpílát eru einnig á nokkrum stöðum meðfram akveginum þar sem er bundið slitlag.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleið að suðurhluta eyjarinnar þar sem m.a. má sjá vitann, fuglabjörg, fagra stuðlabergsvíkur og hólma, aldamótasteina og Miðgarðakirkju.
Gangan hefst í þorpinu og þaðan er haldið upp eyjuna fyrir sunnan veitingastaðinn og verslunina, beygt til vinstri þegar komið er upp í Vallagötu og rétt áður en komið er að húsinu með útvarpsmastrið er beigt til hægri eftir slóða sem þar liggur upp á hæðina. Farið er um hlið sem afmarkar þorpið og úthaga og er mikilvægt að loka hliðinu.
Slóðanum er fylgt beint áfram upp hæðina yfir á austur hlið eyjarinnar þar sem sjá má mastur og vindmyllur. Farið er austur fyrir þessi mannvirki og að gatnamótum sem þar eru. Þá er haldið til hægri (suðurs) og þeim slóða fylgt alla leið suður að vitanum.
Þegar komið er að vitanum er skemmtilegt að taka smá auka krók út á klettana syðst á eyjunni en þar má finna aldamótasteininn 1717. Sem gerir grein fyrir því hvenær heimskautsbaugurinn kom fyrst inn á eyjuna á sögulegum tíma.
Frá vitanum er gengið þvert yfir eyjuna, veginum fylgt að hluta en síðan farið yfir á grasigróinn stíg í gegnum móa yfir á vestur hluta hennar. Á suðvestur horninu er mikið um fallegt stuðlaberg í víkum og hólmum.
Fylgið bakkanum þangað til að það sést í húsið Borgir (fyrsta húsið á vesturströndinni), þá er haldið meðfram slóða sem liggur fyrir sunnan húsið og aftur út á malarveginn sem liggur að kirkjunni og þorpinu og honum fylgt að byrjunarstað göngunnar.

Athugið að aftur þarf að fara í gegnum hlið á þessari leið og er mikilvægt að loka því einnig!