Fara í efni

Grímsey - Vegurinn að heimsenda Blönduð leið (ganga og hjól)

Ganga sem liggur frá þorpinu og yfir á nyrsta hluta eyjarinnar - Eyjafót. Á leiðinni er komið við m.a. hjá börgunum, gamla og nýja heimskautsbaugstákninu og farið yfir heimskautsbaug.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
66.538305, -18.018659 (66° 32.298'N, 18° 1.120'W)
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Gras
  • Blandað yfirborð
  • Bundið slitlag
Hindranir
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Stundum myndast pollar á leiðinni
Hættur
  • Hálka - Hál og sleip leið
  • Umferð bíla
  • Umferð hjólandi
  • Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Ganga sem liggur frá þorpinu og yfir á nyrsta hluta eyjarinnar - Eyjafót. Á leiðinni er komið við m.a. hjá börgunum, gamla og nýja heimskautsbaugstákninu og farið yfir heimskautsbaug og út á nyrsta odda eyjarinnar.

Gangan hefst við höfnina í þorpinu. Þaðan er gengið í átt að flugvellinum og inn á bílastæðið við flugvöllinn. Gengið er framhjá flugskýlinu og gistiheimilinu Básum.

Norðan við gistiheimilið má sjá gamla heimskautsbaugsmerkið "vegvísana og brúnna". Áfram er haldið niður grasivaxinn slóða niður á malarveginn við ströndina, þar er haldið til hægri og veginum fylgt upp að Básavík sem er tilkomumikil vík umvafin háum fuglabjörgum.

Athugið að gæta þess að ganga ekki of nærri brúninni því lundarnir hafa grafið holur í bakkann og gert hann ótryggann.

Snúið aftur yfir á malarveginn og haldið upp hæðina og haldið ykkur sem leið liggur áfram til noðurs á Fót (Eyjafót), til að komast á nyrsta oddann þarf að ganga niður bratta brekku.

Á leiðinni blasir við nýja heimskautsbaugstáknið "ORBIS et GLOBUS" (Hringur og kúla) og þú getur stigið yfir heimskautsbauginn. Haldið áfram út á ystu brúnina af Eyjarfót þar sem vegslóðir endar - þú ert komin á heimsenda!

Haldið er til baka til þorpsins sömu leið og komið var, en hægt að gera nokkra útúrdúra og virða fyrir sér björgin og fuglalífið. 

Athugið að lengd leiðar er miðuð við aðra leiðina og í tíma er tekið mið af að fólk stoppi og skoði fuglana. Til að fá heildar km tölu leiðarinnar þarf því að margfalda vegalengdina og tímann með tveim.