Grímsey - Baugshringurinn Blönduð leið (ganga og hjól)
Ganga sem liggur hringinn í kringum eyjuna, allt frá nyrsta oddanum og yfir í þann syðsta. Með viðkomu hjá heimskautsbaugstáknunun, farið yfir heimskautsbaug, gengið meðfram þverhníptum björgum suður að vitanum. Áfram að stuðlabergsklettunum á vesturhlið eyjarinnar, þaðan framhjá kirkjunni og aftur inn í þorpið.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
66.539452, -18.015574 (66° 32.367'N, 18° 0.934'W)
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
4 - 6 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Gras
- Blandað yfirborð
Hindranir
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Gönguleiðin er að mestu eftir ójöfnum vegslóða þar sem oft myndast pollar, undirlagið grjót, gras eða mold.
Hættur
- Hálka - Hál og sleip leið
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
- Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
Í þorpinu og við kirkjuna eru snyrtingar. Tjaldsvæði er í þorpinu og rusladallar, en sorpílát eru einnig á nokkrum stöðum meðfram akveginum þar sem er bundið slitlag.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Ganga sem liggur hringinn í kringum eyjuna, allt frá nyrsta oddanum og yfir í þann syðsta. Með viðkomu hjá heimskautsbaugstáknunun, farið yfir heimskautsbaug, gengið meðfram þverhníptum björgum suður að vitanum. Áfram að stuðlabergsklettunum á vesturhlið eyjarinnar, þaðan framhjá kirkjunni og aftur inn í þorpið.
Þaðan er síðan haldið aftur til baka upp hæðina sömu leið og komið var. Þegar komið er upp á háeyjuna á ný er fyrsti vegslóði til vinstri tekinn út að austurströnd Grímseyjar. Þessum slóða er fylgt til suðurs alla leið að vitanum á suðurhorni Grímseyjar. Hægt er að taka smá auka krók út á klettana syðst á eyjunni stutt frá vitanum en þar má finna aldamótasteininn 1717 (þá kom baugurinn fyrst inn á eyjuna). Frá vitanum er síðan gengið þvert yfir eyjuna, veginum fylgt að hluta en síðan farið yfir á grasigróinn stíg í gegnum móa yfir á vestur hluta hennar. Á suðvestur horninu er mikið um fallegt stuðlaberg. Fylgið ströndinni þangað til sést í húsið Borgir, þá er farið inn á slóða sem liggur fyrir sunnan húsið og aftur út á malarveginn sem liggur að þorpinu, gengið framhjá kirkjunni og áfram inn í þorpið og að byrjunarstað göngunnar.
Gangan hefst við höfnina í þorpinu. Þaðan er gengið í átt að flugvellinum og inn á bílastæðið við flugvöllinn. Gengið er framhjá flugskýlinu og gistiheimilinu Básum.
Norðan við gistiheimilið má sjá gamla heimskautsbaugsmerkið "vegvísana og brúnna". Áfram er haldið til austurs niður að sjó, í gegnum grasivaxinn móa þangað til að komið er yfir á malarveg, haldið er til hægri og honum fylgt upp að Básavík sem er tilkomumikil vík umvafin háum fuglabjörgum.
Gætið þess að ganga ekki of nærri brúninni því lundarnir hafa grafið holur í bakkann og gert jarðvegin óstöðugan. Snúið aftur á malarveginn og haldið upp hæðina og haldið ykkur á veginum en hann liggur meðfram ströndinni norður á Fót (Eyjafót).
Á leiðinni blasir við nýja heimskautsbaugstáknið "ORBIS et GLOBUS" (Hringur og kúla).
Haldið áfram eins langt og þið komið til norðurs, á þessum stað er ekkert á milli ykkar og norðurpólsins nema endalaus sjór.