Fara í efni

Grímannsfell frá Bringum Hlaupaleið

Grímannsfell er hæsta fjall í landi Mosfellsbæjar. Hlaupaleið frá Bringum upp að Helgufossi og áfram á Stórhól með víðáttumiklu útsýni. Hentar flestum í sæmilegu formi.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær
Upphafspunktur
Bílastæði við Helgufoss
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
  • Vað - Óbrúaður lækur, eyrar eða mýrar
  • Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Fjölbreytt hlaupaleið á Grímannsfell, hæsta fjall í landi Mosfellsbæjar (482 m y.s.). Hlaupið hefst við bílastæðið við Bringur og er fyrst stefnt að Helgufossi eftir stikuðum stígum. Þaðan er hlaupið upp með Köldukvísl og farið yfir nokkrar sprænur áður en komið er að brattasta kaflanum efst. Leiðin er fremur þægileg að hlaupa en tekur svolítið á í mesta brattanum. Hæsti hluti fjallsins nefnist Stórhóll og þaðan er glæsilegt útsýni yfir Hellisheiði, Mosfellsheiði, Esjuhlíðar og höfuðborgarsvæðið. Leiðin er hringur, tæpir 6 km, og undirlagið er blandað með mold, melum, grasi og votlendi á köflum. Það getur verið bleyta og mýrlendi upp við Grímannsfell nema í þurrkatíð. Hlaupið er til baka niður og mikilvægt er að fara varlega í bröttum og lausamöl á köflum.