Glerárgil - milli Kotárborga og Giljahverfis Blönduð leið (ganga og hjól)
Skemmtileg gönguleið liggur umhverfis Glerárgilið á svæðinu sem afmarkast af Kortárborgum að austan og Giljahverfi að vestan. Þetta er fallegt svæði sem býður upp á fjölbreytta náttúruupplifun, ísaldarklappir, gljúfur og skóg allt í nágvígi við byggð.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
65.680810, -18.125859 (65° 40.849'N, 18° 7.552'W)
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Blandað yfirborð
- Bundið slitlag
- Trjákurl
Hindranir
Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Hættur
- Hálka - Hál og sleip leið
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
- Engin þjónusta
- Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Skemmtileg gönguleið liggur umhverfis Glerárgilið á svæðinu sem afmarkast af Kortárborgum að austan og Giljahverfi að vestan. Þetta er fallegt svæði sem býður upp á fjölbreytta náttúruupplifun, ísaldarklappir, gljúfur og skóg allt í nágvígi við byggð.
Gott er að hefja gönguna við bílastæðið við Kotárborgir (við Folfvöllinn) uppi á klöppunum annar valkostur eru bílastæðin við Háskólann á Akureyri.
Til að komast að bílastæðinu við Kotárborgir er ekið upp Þingvallastræti og framhjá leikskólanum Pálmholti, þar fyrir ofan (rétt áður en komið er að brúnni fyrir Gleránna) liggur malarvegur til hægri. Malarveginum er fylgt upp á klappirnar þar sem leggja má bílum. Frá klöppunum er haldið niður eftir náttúrustíg sem liggur vinstra megin við Háskólann á Akureyri, meðfram gljúfrinu þangað að komið er að Borgarbrautinni. Þar er farið upp á göngustíginn meðfram veginum til vinstri, farið yfir brúnna yfir Gleránna og síðan beygt inn á fyrsta stíginn til vinstri, inn í skóginn.
Hægt er að velja um tvo stíga inn í skóginum. Annar er malbikaður og liggur að brúnni yfir Gleránna þaðan sem ekið var inn malarveginn. Hinn stígurinn sem er skemmtilegri er sallaborinn náttúrustígur sem liggur meðfram ánni, með útsýni á gljúfrið og ánna. Á þessari leið má sjá innviði Zipline sem gerir fólki kleyft að taka þátt í skipulagðri ferð þar sem farið er yfir ánna á vír á vegum fyrirtækisins Zipline Akureyri.
Báðir þessir stígar enda á sama stað við göngu- og hjólabrúnna fyrir Gleránna.
Þegar komið er yfir brúnna er beigt til vinstri og malaveginum fylgt upp að bílastæðinu á klöppunum.