Glerárdalur upp að stíflu Blönduð leið (ganga og hjól)
Gönguleið sem liggur frá brúnni við Hlíðarfjallsveg við nýja stöðvarhús Fallorku við ána, upp eftir svokölluðum Fallorkustíg upp að uppistöðulóninu fyrir Glerárstíflu og aftur niður eftir stígnum sem liggur niður að bílastæðinu við Súlur og áfram niður Súluveginn.
Upphaf leiðarinnar er við nýja stöðvarhúsið nálægt Hlíðarfjallsvegi
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
.65.677230, -18.132067 (65° 40.634'N, 18° 7.924'W)
Merkingar
- Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
- Skilti við upphaf leiðar
- Skiltuð án annarra merkinga - merkt leið með skiltum sem vísa leið
Tímalengd
4 - 6 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Trjákurl
Hindranir
- Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
- Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Hættur
- Engar hættur á leiðinni
- Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bílastæði er við upphaf leiðarinnar og einnig við Súluveg ef fólk kýs að aka frekar þangað og byrja leiðina þar.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleið sem liggur frá brúnni við Hlíðarfjallsveg við nýja stöðvarhús Fallorku við ána, upp eftir svokölluðum Fallorkustíg upp að uppistöðulóninu fyrir Glerárstíflu og aftur niður eftir stígnum sem liggur inn að Lamba.
Bílastæði er við nýja stöðvarhúsið fyrir ofan brúna við Hlíðarfjallsveg. Gengið/hjólað er til suðurs eftir malar og moldar stíg sem liggur nálægt eða meðfram gilinu. Á leiðinn er farið fram hjá akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar (BA) og Akstursíþróttafélags vélsleða- og vélhjólamanna (KKA). Tveir útsýnisstaðir eru merktir á leiðinni sem liggja að gilinu og veita stórfenglegt útsýni á hrikalegt gljúfrið og fallega fossa. Eftir svæði KKA er tekinn sveigur utan um svæði Skotfélags Akureyrar (SA) sem er vel afmarkað með girðingu.
Þegar komið er fyrir ofan skotsvæðið liggur leiðin inn á vegslóða, yfir ristarhlið og tekinn smá sveigur upp hlíðina áður en farið er til vinstri (suðurs) inn á vegslóða sem liggur inn dalinn og alveg inn að nýju Glerárdals stíflunni.
Farið er yfir ánna á stíflunni og áfram upp brattan stíg upp á austurhlíð gilsins þar sem við tekur stígur sem liggur annarsvegar inn dalinn að Lamba, fjallaskála Ferðafélags Akureyrar (ath panta þarf og greiða fyrirfram fyrir aðgengi að skálanum hjá félaginu).
Hinsvegar liggur leiðin niður með ánni í átt að Akureyri. Við Súlubílastæðið er Súluvegi fylgt alveg niður að Mjólkursamsölunni, þaðan er síðan haldið áfram yfir Þingvallarstræti við leikskólann Flúðir. Þar er haldið til vinstri yfir brúna á Gleránni og farið nánast heilhringur á hringtorginu niður stíg að stöðvarhúsinu þar sem hringnum er lokið.