Fara í efni

Gatanöf og Bakkahöfði Blönduð leið (ganga og hjól)

Gatanöf er brimsorfinn klettur (berggangur) um 12 m hár og með allstóru gati í miðju. Kletturinn sem stendur við svokallaðan Bakkahöfða er vinsæll viðkomustaðar ljósmyndara. Bakkafjara og Bakkahöfði eru á náttúruminjaskrá vegna sérkennilega rofinna sjávarkletta og nafa (bergganga) en einnig eru lífríkar fjörur og sker.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
Bílastæði neðan við PCC Bakki Silicon
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
  • Skiltuð án annarra merkinga - merkt leið með skiltum sem vísa leið
  • Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Þýft
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Ójafnt yfirborð á kafla þannig að ekki alveg aðgengi fyrir alla en fært flestum.
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst við malarbílastæði neðan við PCC Bakki Silicon verksmiðjuna rétt um 2 km norðan Húsavíkur. Gott upplýsingaskilti er við bílastæðið sem tilvalið er að lesa áður en lagt er af stað. Sé hringurinn genginn réttsælis er byrjað að ganga stuttan malarkafla áður en haldið er áfram væga hækkun upp höfðann á grasi. Gatanöfin birtist strax eftir um 350 metra göngu. Haldið er áfram meðfram strandlengjunni á grasi og komið að fleiri áningarstöðum svo sem Illunöf, Bakkastakka og Veturliðabæli sem öll eru merkt með skiltum. Þegar komið er niður höfðann verður gönguleiðin aðeins grófari en áfram tiltölulega þægileg þó. Komið er að sandi og þaðan beygt til hægri inn á gamlan malarveg sem liggur svo alla leið að bílastæðinu. Heilt yfir er mjög auðvelt að rata leiðina.