Garðabæjarhringur frá Vídalínskirkju Hlaupaleið
Fjölbreytt hlaupaleið um Garðabæ sem hefst við Vídalínskirkju og liggur fram hjá sögulegum stöðum eins og Hofsstöðum og Vífilsstöðum, að Vífilsstaðavatni, Urriðaholti og yfir Garðahraun. Um 7 km hringur, að mestu á malbiki og stígum.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Við Vídalínskirkju
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Farið er stuttan spöl í kantinum á Elliðavatnsvegi og yfir götur í þéttbýli; gæta þarf að bílaumferð.
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Salerni og aðstaða við Vídalínskirkju við upphaf leiðar.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Fjölbreytt hlaupaleið um Garðabæ sem tengir saman sögu, byggð og náttúru. Leiðin hefst við Vídalínskirkju, en tilvalið er að byrja eða enda á því að skoða Minjagarðinn að Hofsstöðum þar hjá, þar sem grafinn var upp einn stærsti landnámsskáli sem fundist hefur á Íslandi. Hlaupið er eftir stíg efst á hæðinni milli hverfanna, framhjá Holtstúni og áfram meðfram Reykjanesbraut og yfir brúna til móts við Vífilsstaði. Leiðin liggur fyrir neðan Vífilsstaði eftir Hraunstíg að Vífilsstaðavatni; fyrir ofan blasir gamli Vífilsstaðaspítalinn við, þar sem starfrækt var berklahæli frá 1910. Frá vatninu er haldið að Vífilsstaðahlíð og inn á stíginn meðfram byggðinni í Urriðaholti. Farið er stuttan spöl með Elliðavatnsvegi (Flóttamannaveginum) áður en komið er inn á stíginn við Urriðaholt, yfir Urriðaholtsstræti og yfir brúna yfir Reykjanesbraut. Þaðan liggur stígur út á Garðahraun og þverar úfið hraunið, síðan í gegnum íbúðahverfið í Flötum og aftur upp að Vídalínskirkju. Undirlagið er að mestu malbik og stígar, með hraunkafla, og leiðin er nánast flöt. Salerni og aðstaða eru við upphafsstað.