Flugvallahringur frá Vesturbæjarlaug Hlaupaleið
Létt og aðgengileg hlaupaleið á malbikuðum stígum frá Vesturbæjarlaug hringinn kringum Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri. Um 8 km með flöt leið, að hluta meðfram sjó við Skerjafjörð. Fjölbreytt borgarumhverfi með útsýni til Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur. Hentar vel í æfingahlaup allan ársins hring.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Sundlaug Vesturbæjar (Hofsvallagötu)
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Bundið slitlag
Hættur
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Sundlaug, salerni og bílastæði við Vesturbæjarlaug við upphaf. Veitingar í Nauthólsvík í grennd.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi leið er létt og aðgengileg hlaupaleið sem hefst við Vesturbæjarlaug og liggur hringinn í kringum Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri. Leiðin fylgir göngu- og hjólastígum um Vesturbæ, Vatnsmýri, Skerjafjörð og nágrenni flugvallarins. Reykjavíkurflugvöllur á sér langa sögu, en flugrekstur hófst í Vatnsmýri árið 1919 og Bretar byggðu upp varanlegan flugvöll á stríðsárunum. Leiðin er að stórum hluta greiðfær og hröð, tilvalin fyrir jöfn æfingahlaup, og liggur að hluta meðfram sjónum við Skerjafjörð þar sem víðsýnt er. Í grennd eru Öskjuhlíð, Nauthólsvík og Háskóli Íslands, og auðvelt er að tengja leiðina við aðrar leiðir eins og Ægisíðu og Fossvog. Leiðin er um 8 km frekar flöt, um 30 metar í hækkun, og hentar því vel í lengri æfingahlaup á jöfnum hraða. Stígarnir eru að hluta sameiginlegir göngu- og hjólafólki og því er rétt að sýna aðgát og víkja fyrir hjólandi umferð, auk þess sem fara þarf yfir götur á köflum. Þar sem leiðin er opin og liggur að hluta meðfram sjó getur verið vindasamt. Bílastæði og sundaðstaða eru við Vesturbæjarlaug við upphaf leiðar.