Fara í efni

Fálkafell Blönduð leið (ganga og hjól)

Um 30–40 mínútna létt ganga frá hitaveituskúrunum við Súluveg upp vegslóða að Fálkafelli í 370 m hæð. Leiðin er nokkuð brött á köflum en býður upp á frábært útsýni yfir Akureyri. Skálinn var byggður 1932 og er einn elsti skátaskálinn á Íslandi.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Akureyrarbær
Upphafspunktur
Við Súluveg. 65.664367, -18.155433 (65° 39.862'N, 18° 9.326'W)
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Möl
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Vegslóði liggur upp að Fálkafelli. Vatni er ekki veitt af leiðinni þannig að vatn og klaki/ís sest í slóðanum og á stöðum drulla í leysingum.
Hættur
Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Fálkafell er skáli í eigu skátafélagsins Klakks, staðsettur í u.þ.b. 370 metra hæð y.s. Skálann byggðu skátaflokkurinn Fálkar árið 1932 og er hann nýttur fyrir skátastarf og er ekki opin öðrum gestum.

Fremur létt og greiðfær leið liggur upp að skálanum. Það tekur 30-40 mínútur að ganga frá upphafspunkti gönguleiðarinnar sem er við hitaveituskúra Norðurorku við Súluveg, þar má leggja bílum.

Leiðin liggur eftir vegslóða upp hæðina að Fálkafelli og er nokkuð brött á köflum. Frábært útsýni er yfir bæinn og skemmtileg leið fyrir alla fjölskylduna.

Fálkafell er eins og margir segja "ekta útileguskáli" en í húsinu eru hvorki rafmagn né rennandi vatn. Fálkafell er klárlega í hópi elstu fjallaskála landsins sem enn er í reglulegri notkun og sennilega elsti skátaskálinn. Hægt er að lesa meiri fróðleik um skálann á blogg síðu Arnórs Blika Hallmundssonar:  Sjá: https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1135534/https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1135534/