Fara í efni

Esjuhringur með Bibbu Hlaupaleið

Krefjandi fjallahlaupaleið á Esju, bæjarfjalli Reykjavíkur, um austurhluta göngusvæðisins. 10 km hringur með mikilli hækkun sem hefst við Esjustofu, fer austur og upp þjónustuveg í átt að Gunnlaugsskarði — hin rómaða „Bibba“ — og niður hefðbundnu leiðina til baka. Stórbrotið útsýni og alvöru þolraun fyrir vana hlaupara.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Esjustofa við Mógilsá
Erfiðleikastig
Þrep 3 - Krefjandi leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Brött leið. Snjóflóðahætta, grjóthrun og hálka, einkum að vetri. Austurleggurinn (Bibba) minna farinn.
Hættur
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
  • Íshrun - Klakabunkar falla úr klettum, brekku eða fjallshlíð
  • Snjóflóð
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Bílastæði, salerni, Esjustofa og fræðsluskilti við Mógilsá.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Að vetrarlagi er nauðsynlegt að hafa hálkubrodda og fara með gát vegna snjóflóðahættu. Efsti hluti óráðlegur að vetri nema fyrir vana með öryggisbúnað.
Esjan er bæjarfjall Reykjavíkur og einn vinsælasti útivistarstaður borgarbúa, en um leið krefjandi fjall þar sem fara þarf varlega. Þessi leið er mældur 10 km hringur með um 670 metra hækkun og hentar vönum hlaupurum í góðu formi. Ólíkt hefðbundnu Esjugöngunni fer þessi leið ekki upp að Steini, heldur nýtir austurhluta göngusvæðisins. Hlaupið hefst við Esjustofu og er haldið austur eftir vegum að austanverðu svæðinu. Þaðan er þjónustuvegi fylgt langleiðina upp í átt að Gunnlaugsskarði, sem er skarðið milli Kistufells og Þverfells. Efst er beygt til vesturs í átt að Steini, en áður en þangað er komið er haldið niður hefðbundnu gönguleiðina og niður yfir göngubrúna og endað er aftur við Esjustofu. Þessi austurleið er upprunalega „Bibban“. Bibban er nefnd eftir Bryndísi Baldursdóttur sem ásamt Sigrúnu Árna datt í hug að halda hlaup í Esjunni sem væri nákvæmlega 10 km hver hringur með allt að 100 km fjallahlaupi. Leiðin var mikið notuð af hlaupahópum áður en stígum um Esjuna var fjölgað. Bibban á því heiðurinn af því að kynna ótal hlaupara fyrir því að hlaupa út úr hefðbundna Esjuhringnum upp af Steini. Í dag eru enn fleiri útgáfur til en gjarnan er talað um að „taka Bibbu“ eða „bæta við Bibbu“ þegar hlaupið er út frá Steini austur í átt að Gunnlaugsskarði og niður til baka. Undirlagið er blandað; vegir, þjónustuvegur, stígar og skriður. Fara ber með gát, einkum að vetrarlagi, vegna snjóflóðahættu, grjóthruns og hálku. Bílastæði, þjónusta og fræðsluskilti eru við Esjustofu.