Fara í efni

Esjuhlíðar Gönguleið

Tæplega 4 kílómetra gönguleið um fjölbreytt umhverfi Esjuhlíða. Leiðin liggur meðal annars um gamlan skóg og tengist stíg sem liggur um trjásafn rannsókarsviðs Lands og skóga á Mógilsá.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Esjustofa eða bílastæði við Kollafjarðará
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
  • Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
  • Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Útivistarsvæðin við Esjuna eru með þeim vinsælustu á höfuðborgarsvæðinu og þangað leggur fjöldi fólks leið sína allt árið, hvort sem er til að ganga bratt upp á fjallið eða fara um Esjuhlíðarnar í fjölbreyttu og fallegu umhverfi. Milli Esjustofu og Kollafjarðará liggur nýleg tengileið, um 1.850 metra löng aðra leiðina, eða tæplega fjórir kílómetrar fram og til baka. Leiðin liggur um gamlan skóg í hlíðum Esjunnar og tengist stígakerfi um trjásafn sem Land og skógur (áður Skógræktin) heldur úti að Mógilsá. Undirlagið er blandað: mold, melur, grjót og skógarbotn og farið er yfir nokkrar sprænur á brúm. Leiðin er fremur brött á köflum en annars þægileg yfirferðar og hentar vel bæði til göngu. Á leiðinni er víða gott útsýni yfir Kollafjörð og út á sundin, og skógurinn veitir skjól í misjöfnum veðrum. Hægt er að leggja af stað frá Esjustofu eða frá bílastæðinu við Kollafjarðará, og þaðan tengist leiðin öðrum stígum í Esjuhlíðum. Bílastæði eru bæði neðan Þverfellshorns og við Kollafjarðará, og salerni er við Esjustofu.