Fara í efni

Elliðavatnshringur frá Árbæjarlaug Hlaupaleið

Fjölbreytt hlaupaleið umhverfis Elliðavatn, frá Árbæjarlaug um Norðlingaholt, Rauðhóla og Vatnsenda. Um 12,5 km hringur með lítilli hækkun á göngustígum, malarstígum og köflum um íbúðahverfi. Fallegt vatn á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs með fjölskrúðugu fuglalífi og sögu. Hentar vel í æfingahlaup.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Árbæjarlaug
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Möl
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Fjölfarnir stígar að sumri; gagnkvæm aðgát hlaupara og hjólafólks.
Hættur
  • Umferð hrossa
  • Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Sundlaug, salerni og bílastæði við Árbæjarlaug við upphaf leiðar.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi leið liggur hringinn umhverfis Elliðavatn, fallegt stöðuvatn á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs sem er að hluta innan friðlandsins í Heiðmörk. Leiðin hefst við Árbæjarlaug og fylgir göngu- og hlaupastígum að vatninu og umhverfis það. Við Elliðavatn er stórt votlendissvæði með mýrum og flóum og fjölbreyttu fuglalífi og vatnið er þekkt fyrir veiði. Á vesturbakka vatnsins er Elliðavatnsbærinn, sem nú hýsir starfsemi Skógræktarfélags Reykjavíkur. Þar fæddist skáldið Einar Benediktsson árið 1864, en gamla þjóðleiðin til Reykjavíkur lá suður fyrir vatnið svo ferðalangar þyrftu ekki að ríða Elliðaárnar. Leiðin fer um Norðlingaholt og meðfram Rauðhólum Reykjavíkurmegin, og um Vatnsenda og Þingahverfi Kópavogsmegin, þar sem til skiptis er hlaupið eftir stígum og götum. Undirlagið er blandað; malbikaðir göngustígar, malarstígar og kaflar um íbúðahverfi. Leiðin er um 12,5 km með lítilli hækkun, um 95 metrum, og hentar vel í æfingahlaup. Á sumardögum er nokkur umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi. Svæðið er að hluta vatnsverndarsvæði og ber að ganga vel um náttúruna. Bílastæði og sundaðstaða eru við Árbæjarlaug.