Fara í efni

Elliðavatnsbær að Þingnesi Gönguleið

Gengið er meðfram Elliðavatni um fjölbreytt gróðurlendi með útsýni yfir vatnið.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Elliðavatnsbær eða Þingnes
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Fjölbreytt og nánast flöt leið meðfram Elliðavatni, einu stærsta vatni á höfuðborgarsvæðinu, á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Lagt er af stað frá Elliðavatnsbæ, gömlu og reisulegu bæjarstæði við norðanvert vatnið. Gengið er meðfram vatnsbakkanum um fjölbreytt gróðurlendi; birkikjarr, mólendi og votlendi þar sem fjölskrúðugt fuglalíf er allt árið. Víða er gott útsýni yfir vatnið og til fjalla, og við bakkann er nýlegur áningarstaður með palli og bekkjum þar sem tilvalið er að staldra við. Leiðin liggur út á Þingnes, lágan tanga sem skagar út í vatnið, en þar hafa fundist leifar af átján mannvirkjum frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar og er staðurinn meðal merkari fornminjasvæða á höfuðborgarsvæðinu. Undirlagið er blandað náttúrulegt efni: mold, melur og grjót og leiðin er um 4,6 km, með óverulegri hækkun. Hún hentar því flestum og er góð bæði til rólegra hlaupa og útivistar með fjölskyldunni. Bílastæði er við upphafsstað.