Drápuhlíðarfjall gönguleið Gönguleið
Drápuhlíðarfjall á Snæfellsnesi er 527 metra litskrúðugt og sérkennilegt fjall, sem blasir við þegar keyrt er eftir þjóðvegi nr. 54 milli Álftafjarðar og Stykkishólms.
Fjallið sker sig úr umhverfinu hvað litadýrð snertir og talið auðugt af málum og náttúrusteinum. Mikið er um brennisteinskís og ýmsa sérkennilega steina, jaspis og glerhalla.
Talið var að gull væri að finna í fjallinu og þess var leitað, en magnið þótti of lítið, heitir þar Gullberg á einum stað. Fyrir neðan Gullberg eru Beinadalir þar sem sagt er að fundist hafi beinaleifar sem menn trúðu að væru frá tímum syndaflóðsins.
Í námunda við Drápuhlíðarfjall eru örnefni eins og Ísafell og Pekronsdalur sem talin eru benda til írskrar byggðar.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Vesturland, Stykkishólmur
Upphafspunktur
N 64°59.7110 W 022°44.4627
Merkingar
- Skilti við upphaf leiðar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
- Stórgrýtt
- Blandað yfirborð
- Gras
- Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
- Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
- Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hundar í bandi
Hundar í bandi