Fara í efni

Búrfell um Búrfellsgjá Hlaupaleið

Stutt og aðgengileg utanvegahlaupaleið um Búrfellsgjá upp á gíginn Búrfell og til baka. Um 5,6 km með hóflegri hækkun eftir malarstíg í einstakri hrauntröð. Hraunmyndanir, hellisskútar og merkilegar menningarminjar á leiðinni. Hentar vel sem styttri æfing eða fjölskylduhlaup.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Bílastæði við Búrfellsgjá
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
  • Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
  • Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Blandað yfirborð
  • Hraun
  • Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Timburtröppur við Hjallamisgengi. Lausamöl í hlíðum Búrfells. Vinsæl meðal fjallahjólara.
Hættur
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Sprungur - Djúp glufa eða brot í bergi eða í jarðvegi sem er á hreyfingu
  • Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bílastæði og fræðsluskilti við Búrfellsgjá.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi leið er stutt og aðgengileg útgáfa af Búrfellsgjárhlaupinu, sem liggur beint um hrauntröðina upp á gíginn Búrfell og sömu leið til baka. Leiðin hefst við bílastæðið við Búrfellsgjá, þar sem gott fræðsluskilti lýsir leiðinni og helstu kennileitum. Búrfellsgjá er rúmlega 3,5 km löng hrauntröð frá gígnum Búrfelli, sem er stakur gjall- og klepragígur er gaus fyrir um 8000 árum. Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2020. Gengið er niður timburtröppur við Hjallamisgengið og inn í gjána, sem er þröng og með bröttum veggjum næst gígnum en breikkar niður á jafnsléttu. Á leiðinni sjást margskonar hraunmyndanir, litlir hellisskútar, sprungur og misgengi. Þar er einnig Gjáarétt, hlaðin rétt frá 1839 sem var friðlýst sem fornleifar 1964, og Vatnsgjá þar sem smalar sóttu vatn. Undirlagið er malarstígur, greiðfær en grýttur á köflum, og lausamöl er í hlíðum Búrfells. Farið er niður að aftan og gíg Búrfells fylgt stutta leið til baka áður en komið er aftur inn á malarstíginn. Leiðin er um 5,6 km með um 100 metra hækkun.