Stapavík Gönguleið
Stapavík er lítil klettavík við austanverðan Héraðsflóa. Þar var áður uppskipunarhöfn og á leiðinni að víkinni má víða sjá mannvistarminjar sem minna á verslun og útræði fyrri alda. Á nokkrum stöðum hafa verið sett upp söguskilti þar sem fræðast má nánar um sögu svæðisins.
Leiðin er vel merkt og auðveld ganga sem ætti að henta flestum.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Austurland, Múlaþing
Upphafspunktur
Bílastæði við Unaós Vegur 94 Borgarfjarðarvegur
Merkingar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
- Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
3 - 4 klukkustundir
Yfirborð
- Blandað yfirborð
- Möl
Hindranir
- Vað - Óbrúaður lækur, eyrar eða mýrar
- Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Leiðin er almennt auðveld ganga og ætti að henta flestum. Yfirborð er náttúrulegt og getur verið ójafnt og blautt á köflum. Gæta þarf varúðar við kletta og sjávarsíðuna.
Hættur
- Sjávarföll - Breytileg staða sjávar, flóð og fjarða
- Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Engin þjónusta er á svæðinu.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
opið yfir allt árið
Gönguleiðin í Stapavík er falleg og tiltölulega auðveld ganga sem ætti að henta flestum, þar á meðal fjölskyldum. Gangan hefst við bílastæðið við Unaós og þaðan er gengið út með Selfljóti eftir greinilegum fjár og gönguslóðum. Á leiðinni opnast fallegt útsýni yfir Héraðssanda og til Hellisheiðar eystri og víða má sjá minjar sem tengjast sögu svæðisins.
Gengið er meðal annars fram hjá Eiðaveri og upplagt er að koma við á Krosshöfða, þar sem áður var löggilt verslunarhöfn. Leiðin liggur síðan áfram að Stapavík, lítilli klettavík við Héraðsflóa þar sem áður var uppskipunarhöfn. Enn má sjá leifar af handknúnu spili sem notað var til að flytja varning úr skipum í land. Leiðin er vel merkt og auðvelt er að fylgja henni. Gangan að Stapavík tekur um klukkustund hvora leið og gefur því góðan tíma til að staldra við, skoða minjar og njóta útsýnisins.
Frá Stapavík er einnig hægt að halda áfram eftir merktri gönguleið um Gönguskarð til Njarðvíkur. Gönguleiðin fylgir að hluta gömlum þjóðleiðum, enda var þetta áður ein helsta leiðin milli Héraðs og Borgarfjarðar eystri. Gangan sameinar því fallega náttúru, sjávarsýn og áhugaverða sögu svæðisins.