Hólmanes Gönguleið
Falleg gönguleið um Hólmanes, friðlýst útivistarsvæði milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Leiðin liggur um fjölbreytt landslag með klettum, fjörum og gróðursælum svæðum og býður upp á fallegt útsýni yfir firðina og fjöllin í kring.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Austurland, Fjarðabyggð
Upphafspunktur
Bílastæði er við upphaf leiðar við veg 92 Norðfjarðarvegur
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Leiðin getur verið ójöfn og óstöðug á köflum, með lausu og stærra grjóti. Gæta þarf varúðar, sérstaklega í bleytu þegar undirlag getur orðið hált.
Hættur
- Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
- Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Einhver Landvarsla yfir sumartímann.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hólmanes er fjölbreytt og fallegt útivistarsvæði milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Hægt er að ganga um 5 km hringleið um svæðið og tekur gangan um 2,5–3 klukkustundir. Einnig er auðvelt að stytta gönguna og velja styttri leiðir um nesið og ganga sömu leið til baka. Leiðin liggur um fjölbreytt landslag þar sem skiptast á grónar hlíðar, klettar, urðir og fjörur. Á svæðinu er mikið fuglalíf, áhugaverðar bergmyndanir og fallegt útsýni yfir firðina og nærliggjandi fjöll.